Selfoss tilkynnir loks að Carlos hafi látið af störfum
Sigurður Ástgeirsson

Selfoss hefur nú loks tilkynnt að Spánverjinn, Carlos Martin Santos hafi látið af störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins eftir tveggja ára dvöl hjá félaginu.

Carlos var valinn þjálfari ársins á Handkastinu en hann hélt Selfossi uppi sem nýliði í deildinni og gerði það á sannfærandi hátt. Carlos tók við liði Selfoss í Grill66-deildinni og kom liðinu upp á sínu fyrsta ári.

Rúmlega sex vikur eru síðan Handkastið greindi frá því að Carlos Martin Santos hafi tilkynnt stjórn Selfoss að hann ætlaði sér að nýta uppsagnarákvæði í samningi sínum og væri með tilboð að utan.

ÞJÁLFARABREYTINGAR Á SELFOSSI – CARLOS YFIRGEFUR ÍSLAND

,,Carlos Martin Santos og handknattleiksdeild Umf. Selfoss hafa komist að samkomulagi um starfslok Carlos sem þjálfari meistaraflokks karla. Er þetta gert að ósk Carlos. Carlos kom til félagsins árið 2023 sem aðstoðarþjálfari Þóris Ólafssonar. Hann tók síðan við sem aðalþjálfari liðsins árið 2024 og hefur stýrt liðinu síðustu tvö tímabil. Á fyrsta tímabili hans náði liðið þeim áfanga að tryggja sér sæti í Olísdeildinni eftir ævintýralegt umspil við Víking og Gróttu. Liðið endaði í 10. sæti Olísdeildarinnar í vetur og tryggði sér áframhaldandi veru í deild þeirra bestu. Handknattleiksdeildin þakkar Carlos fyrir sitt framlag til félagsins og óskar honum velfarnaðar í næstu verkefnum," segir í tilkynningunni frá Selfossi.

Carlos þakkar þakkar félaginu og leikmönnum fyrir tíma sinn á Selfossi. „Ég hef notið þess að þjálfa á Selfossi og vinna með ungum og metnaðarfullum leikmönnum. Ég óska Selfossi alls hins besta á næstu leiktíð og í framtíðinni.“

Samkvæmt heimildum Handkastsins er Carlos á förum frá Íslandi þar sem hann er að taka við liði erlendis frá.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top