
Þorgeir Bjarki Davíðsson hægri hornamaður Gróttu er að ganga í raðir nýliða Víkings í Olís-deild karla. Þetta herma heimildir Handkastsins. Þorgeir Bjarki lék með Gróttu í Grill66-deildinni í vetur en liðið endaði með jafn mörg stig og Víkingur sem var með betri innbyrðisstöðu og fór því beint upp í Olís-deildina. Grótta tapaði hinsvegar gegn Herði í undanúrslitum umspilsins og verða áfram í Grill66-deildinni á næstu leiktíð. Þorgeir Bjarki gekk í raðir Gróttu sumarið 2022 eftir að hafa leikið með Val og þar áður HK og Fram. Hann hætti tímabundið handknattleiksiðkun en sneri aftur á parketið fyrir tveimur árum og lék með Gróttu síðari hluta tímabilsins þegar Grótta féll úr Olís-deildinni. Hann lék síðan með liðinu í Grill66-deildinni í vetur. Nú virðist hann hinsvegar ætla að taka slaginn með nýliðum Víkings og verður því annar leikmaður Gróttu sem fer sömu leið en Gunnar Hrafn Pálsson var á dögunum kynntur sem nýr leikmaður Víkings. Hann snýr því aftur í Safamýrina, sem nú heitir Virkið en hann lék á sínum tíma með Fram þegar Safamýrin var heimavöllur félagsins. Þorgeir Bjarki verður þrítugur á næsta ári og er uppalinn hjá Gróttu. Rætt var um þetta og miklu meira til í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.