Aron Rafn liggur undir feldi
Sævar Jónasson

Aron Rafn Eðvarðsson markvörður bikarmeistara Hauka segir það vel koma til greina að halda áfram með liðinu í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Aron Rafn sem verður 37 ára í september lagði skóna á hilluna fyrir síðustu leiktíð en snerist hugur þegar uppeldisfélagið var í markmannsvandræðum vegna meiðsla Vilius Rasimas sem á endanum þurfti að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla.

Aron Rafn dró því handboltaskóna fram úr hillunni rétt fyrir tímabilið og átti stórgott tímabil og reyndist vera einn besti markvörður Olís-deildarinnar. Aron Rafn var meðal 35 leikmanna á EM lista Snorra Steins fyrir Evrópumótið í janúar og þá varð hann bikarmeistari með Haukum á tímabilinu.

,,Ég er ekki búinn að taka ákvörðun um framtíðina. Ég ætla gefa þessu einhverjar vikur áður en ég tek ákvörðun með það. Mér fannst ég hafa ennþá eitthvað fram að færa á gólfinu en ég þarf að sjá hvað líkaminn segir því hann er orðinn ansi lúinn," sagði Aron Rafn í samtali við Handkastið aðspurður hvort skórnir væru farnir á hilluna.

Grétar Ari Guðjónsson gekk í raðir Hauka í janúar og myndaði sterkt markvarðarpar með Aroni Rafni eftir áramót.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top