Erum að reyna vanda vel til verka og ekki tjalda til einnar nætur
Raggi Óla

Sigurður Straumfjörð Pálsson formaður meistaraflokks ráðs karla hjá Aftureldingu segir að mikil vinna hafi verið unnin bakvið tjöldin hjá handknattleiksdeild Aftureldingar síðustu vikur.

Á dögunum var Sebastian Alexandersson ráðinn til næstu þriggja ára sem þjálfari kvennaliðs félagsins sem leikur í Grill66-deildinni. Enn hefur ekki verið tilkynnt um eftirmann Stefáns Árnasonar sem sagt var upp störfum sem þjálfari karlaliðsins eftir tímabilið.

,,Við erum að reyna vanda vel til verka og ekki tjalda til einnar nætur. Við erum að endurskipuleggja hvernig við rekum handboltadeildina og erum að sameina rekstur bæði karla og kvenna meistaraflokkana undir sama hatti og við erum að gera það með þeim tilgangi að styðja betur við kvennastarfið. Þegar þú ert að reka handknattleiksdeild í dag þá er þetta vinna við það að fjárhagur og árangur fari saman," sagði Sigurður Straumfjörð í samtali við Handkastið á dögunum.

,,Við viljum að kvennastarfið njóti sama anda og karla starfið í Mosfellsbænum og skapa sömu fyrirmyndir. Þannig þetta sé þannig að óháð því hvort þú sért strákur eða stelpa í Mosfellsbæ þá ertu með þínar fyrirmyndir í meistaraflokki og liður í því er skref eitt að styrkja meistaraflokk kvenna og fá alvöru þjálfara og koma okkur upp í úrvalsdeild kvenna megin."

Í sumar mun handknattleiksdeildin ráða starfsmann deildarinnar sem ekki hefur verið áður í Mosfellsbænum.

,,Það er einn af þessum fasa og annar fasi sem við erum í er að handknattleiksdeildin hefur alla sína tíð verið rekin af sjálfboðaliðum og við höfum aldrei verið með starfandi framkvæmdastjóra eða starfsmann á skrifstofu en það er liður í því í þessari sameiningu að það verður búið til nýtt stöðugildi frá og með sumrinu. Síðan erum við líka í þeirri vinnu að styrkja afreksstarfið okkar í yngri flokkum. Við eigum efnilega leikmenn og við þurfum að passa að það sé verið að hlúa að þeim, samhliða þessu öllu saman erum við að setja inn nýtt stöðugildi sem flokkast undir afreks þjálfari. Það er ýmislegt í gangi bakvið tjöldin sem bolurinn er kannski ekki að finna fyrir," sagði Sigurður að lokum í samtali við Handkastið.

Í nýjasta þætti Handkastsins var staða Aftureldingar rædd en þar var fullyrt í enn eitt skiptið að Hrannar Guðmundssyni yrði í nýjasta þjálfarateymi karlaliðs Aftureldingar en leitin af meðþjálfara með Hrannari væri í fullum gangi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top