Sannfærandi sigur Íslands í Kaíró – Ísak stórkostlegur
Kristinn Steinn Traustason

Íslenska landsliðið fagnaði sínum öðrum sigri gegn Egyptum í seinni vináttulandsleik þjóðanna þegar liðin mættust í Kaíró í dag.

Ísland vann þriggja marka sigur 30-27 eftir að hafa verið 13-11 yfir í hálfleik. Þorsteinn Leó Gunnarsson var valinn besti leikmaður leiksins en hann skoraði fjögur mörk í leiknum. Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson skoruðu einnig fjögur mörk fyrir Ísland í leiknum og voru markahæstir íslenska liðsins.

Orri Freyr Þorkelsson skoraði þrjú mörk ásamt Kristjáni Erni Kristjánssyni, Bjarka Má Elíssyni og Teiti Erni Einarssyni.

Ísak Steinsson var frábær í marki Íslands með 12 varin skot eða 52% markvörslu. Jón Þórarinn Þorsteinsson átti einnig góða innkomu í markið og varði átta skot, með 33% markvörslu.

Jafnfræði var með á liðunum í upphafi leiks en Ísland náði þriggja marka forystu í stöðunni 10-7. Í seinni hálfleik náði Ísland mest sex marka forystu í stöðunni 21-15. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top