Þorgeir Bjarki kynntur í Virkinu
Víkingur

Nýliðar Víkings í Olís-deild karla hafa tilkynnt að Þorgeir Bjarki Davíðsson sé búinn að skrifa undir samning við félagið. Handkastið greindi frá því á dögunum að Þorgeir Bjarki væri á leið í Virkið.

Þorgeir kemur til Víkings frá Gróttu þar sem hann hefur verið lykilleikmaður undanfarin tímabil en Þorgeir Bjarki er uppalinn hjá Gróttu. Á ferlinum hefur hann einnig leikið með Fram, HK og Val.

Þorgeir sem er örvhentur getur bæði leikið sem skytta og hornamaður.

,,Hann mun styrkja leikmannahóp Víkings verulega fyrir komandi verkefni í efstu deild. Með reynslu sinni, fjölhæfni og leikskilningi mun hann gefa liðinu aukna breidd og mikilvæga reynslu inn í krefjandi tímabil í Olís deildinni. Handknattleiksdeild Víkings býður Þorgeir Bjarka hjartanlega velkominn í Víking og hlakkar til að sjá hann í rauðu og svörtu á komandi tímabili," segir í tilkynningunni frá nýliðunum í Olís-deild karla sem unnu Grill66-deildina eftir að hafa endað með jafn mörg stig og Grótta en voru með betri innbyrðisstöðu.

Þorgeir Bjarki er annar leikmaður Gróttu sem gengur í raðir Víkings en áður hafði Gunnar Hrafn Pálsson gengið í raðir Víkings.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top