Töluverðar breytingar verða á karlaliði HK á milli leiktíða en liðið hefur misst máttarstólpa og fengið til sín aðra leikmenn í þeirra stað. Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari HK sem er á leið inn í sitt þriðja tímabil sem þjálfari HK segist vera spenntur fyrir þeim nýju leikmönnum sem hafa gengið í raðir HK. Um er að ræða þá, Alex Mána Oddnýjarson sem kom frá Fjölni, Tómas Braga Starrason sem kom frá Gróttu og þá hafa tveir erlendir leikmenn gengið í raðir HK. Þeir Andrew Wisman frá Danmörku og Trúgvi Hávardsson frá Færeyjum. ,,Við erum auðvitað að missa fjóra leikmenn sem hafa verið burðarrásir í liðinu síðustu tvö ár eða síðan ég kom til HK. Það er alltaf slæmt að lið breytist mikið á milli ára en svona er íslenskur handbolti og ungir leikmenn sjá oft eitthvað meira og stærra hjá öðrum liðum en sjá kannski ekki hvað þeir hafa bætt sig og þroskast þar sem þeir." Haukur Ingi Hauksson gekk í raðir Fram, Ágúst Guðmundsson skipti yfir til FH og þá fóru þeir Hjörtur Ingi Halldórsson og Sigurður Jefferson til Hauka. ,,Við ætlum að halda ótrauðir áfram og við erum að leita að hægri skyttu en það hefur gengið hægt til þessa." HK hefur verið orðað við Dag Sverri Kristjánsson og Birki Benediktsson. ,,Tímabilið var allskonar og bæði inná milli vonbrigði en líka alltaf gaman að sjá unga leikmenn taka næsta skref og þroskast og verða mikið betri. Við lentum í erfiðum meiðslum lykilmanna í vetur og það er ekkert launungarmál að það hafði mikil áhrif á leik liðsins. Bæði að missa báða markverðina sem voru hugsaðir á milli stanganna yfir í mikilvægasta leikmann síðasta tímabils sem missti nánast af öllum vetrinum. Við náðum sama stigafjölda í vetur og árið á undan en það var undir okkar markmiðum fyrir veturinn og leikur okkar var of kaflaskiptur." ,,Frammistaðan var bara ekki nægilega góð inná milli en þegar við fengum frammistöðu þá sýndum við það að við vorum með gott lið sem hefði getað þroskast mikið og tekið næstu skref á milli ára." Halldór Jóhann segir að nú taki hinsvegar við nýr kafli hjá liðinu. ,,Núna byrjar aftur ákveðin uppbygging með mörgum nýjum leikmönnum en góðum kjarna annarra leikmanna sem verða áfram og því horfum við bjartsýnir inn í næsta tímabil. Auðvitað geri ég mér grein fyrir að það tekur tíma að slípa alla saman en við erum að fá vinnusama leikmenn með mismunandi gæði inní hópinn en við þurfum samt að gera okkur grein fyrir því að allt mun taka tíma." ,,Við ætlum okkur að verða betri á næstu árum og það hefur ekkert breyst og því er ég bjartsýnn á framtíðina í Kórnum. Við erum með marga unga stráka sem eru að koma inn í meistaraflokkinn og það er þeirra að æfa vel og sýna mér að þeir geti tekið við einhverjum hlutverkum á næstu árum," sagði Halldór Jóhann að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.