
Adam Haukur Baumruk hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið á dögunum. Adam Haukur sem er fæddur árið 1994 lék allan sinn feril með Haukum þar sem hann lék einnig upp alla yngri flokka. Adam er sonur goðsagnarinnar, Petr Baumruk sem lék með Haukum á sínum tíma. ,,Ég er sáttur með minn feril. Ég hef spilað alla mína tíð með Haukum og eitthvað um 15 ár í meistaraflokki og unnið allt sem er boði hér heima með Haukum." Meiðsli hafa haft áhrif á spil mínútur Adams undanfarin ár þar sem hann hefur einbeitt sér að varnarleik í liði Hauka. Hann varð bikarmeistari með Haukum á tímabilinu en hann var einnig bikarmeistari með liðinu síðast þegar Haukar urðu bikarmeistarar tímabilið 2013/2014. Þá var hann Íslandsmeistari með Haukum 2013/2014 og 2014/2015 auk þess að vinna deildina þrívegis. Hann segir að ekkert annað hafi komið til greina en að spila með Haukum allan sinn feril. ,,Haukar hafa og verða alltaf númer eitt hjá mér, enda erfitt að fara annað þegar ég var skírður í höfuðið á Haukum og ólst upp þar." Síðasti leikur Adams á ferlinum var gegn nágrönnunum í FH í oddaleik undanúrslitanna sem FH unnu. ,,Ég var búinn að hugsa um þetta í nokkra mánuði og fannst þetta vera rétti tíminn fyrir mig að hætta. Markmiðið var að taka báða stóru titlana á þessu tímabili og hætta eftir það en við náðum allavega einum og ég gengur stoltur frá borði," sagði Adam að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.