Gróttufólk gerðu upp tímabilið

Á miðvikudaginn fór fram lokahóf Handknattleiksdeildar Gróttu þar sem meistaraflokkar félagsins, þjálfarar, sjálfboðaliðar og starfsfólk kom saman og gerði upp tímabilið. Lokahófið var haldið í hátíðarsal félagsins í Hertz-höllinni.

Veittar voru viðurkenningar til þeirra sem sköruðu fram úr í vetur.

Meistaraflokkur kvenna

Mikilvægasti leikmaður – Ída Margrét Stefánsdóttir
Efnilegasti leikmaður – Elísabet Ása Einarsdóttir
Besti leikmaður – Andrea Gunnlaugsdóttir
Gróttubikarinn – Katrín Helga Sigurbergsdóttir

Meistaraflokkur karla

Mikilvægasti leikmaður – Antoine Óskar Pantano
Efnilegasti leikmaður – Gísli Örn Alfreðsson
Besti leikmaður – Gunnar Hrafn Pálsson
Gróttubikarinn – Ari Pétur Eiríksson

Þeir leikmenn sem höfðu náð leikjaáföngum voru verðlaunaðir en það voru:

50 leikir fyrir Gróttu

Arndís Áslaug Grímsdóttir (67 leikir)
Elísabet Ása Einarsdóttir (55 leikir)
Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir (69 leikir)
Hannes Pétur Hauksson (52 leikir)
Sæþór Atlason (52 leikir)

100 leikir fyrir Gróttu

Ída Margrét Stefánsdóttir (105 leikir)
Katrín Scheving (121 leikur)

200 leikir fyrir Gróttu
Hannes Grimm (216 leikir)

"Við óskum þessum verðlaunahöfum til hamingju og hlökkum til að sjá þá og liðin okkar aftur í haust í baráttunni" segir í tilkynningu frá Gróttu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top