Frá Selfossi í norsku úrvalsdeildina
Sævar Jónasson

Markahæsti leikmaður Selfoss í Olís-deild kvenna á tímabilinu, Mia Kristin Syverud hefur gengið í raðir norska úrvalsdeildarliðsins, Gjerpen. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni um helgina.

Mia Kristin gekk í raðir Selfoss frá norska B-deildarliðinu Aker en hún hafði einnig leikið með Sola í norsku úrvalsdeildinni. Selfoss endaði í neðsta sæti Olís-deildarinnar og féll niður í Grill66-deildina eftir harða fallbaráttu við Stjörnuna.

,,Við erum afar ánægð að tilkynna að Mia Kristin Syverud hefur skrifað undir samning við okkur og við erum mjög ánægð að fá hana í liðið fyrir komandi tímabil," segir í tilkynningunni frá Gjerpen.

Mia handleggsbrotnaði í leik með Selfossi í vetur og missti af þremur leikjum í Olís-deildinni en það kom ekki að sök og endaði hún sem markahæsti leikmaður liðsins í vetur. Systir hennar, Marte Syverud gekk í raðir Selfoss um áramótin og lék með liðinu eftir seinni hluta tímabilsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top