Nokkrir möguleikar í myndinni en ekkert meira spennandi en Valur
Sævar Jónasson

Línumaðurinn stóri og stæðilegi, Jón Ásgeir Eyjólfsson gengur í sumar í raðir Vals frá uppeldisfélagi sínu Stjörnunni þar sem hann hefur leikið með liðinu undanfarin tímabil.

,,Í einu orði er ég spenntur. Valur er með frábæra menningu og hefð og ég er spenntur að verða hluti af því," sagði Jón Ásgeir í samtali við Handkastið þegar hann var spurður að því hvernig tilfinningin væri að vera á leið til Vals.

,,Ég sé fyrir mér að gefa allt sem ég hef uppá að bjóða varnarlega ásamt því að vaxa mikið í sókn og í þessum hraðabolta sem hefur einkennt Valsarana mikið þessu síðustu ár."

,,Það er mikið verkefni fyrir mig að spila mig upp í hlutverk hjá þeim og ég er spenntur að hefjast handa. Þjálfarateymið er mjög sterkt og það er gott að vera með Ágúst og Róbert til að hjálpa mér að ná þeim framförum í handbolta sem ég ætla mér."

Handkastið hefur heyrt af áhuga á Jóni erlendis frá síðustu ár.

,,Það voru nokkrir möguleikar í myndinni en ekkert sem mér fannst meira spennandi en Valur. Auk þess er ég í meistaranámi í HR þannig staðsetningin og tímasetningin gengu fullkomlega upp. Það var áhugi úr nokkrum áttum en Vals möguleikinn stóð uppúr frá byrjun. Ég hef mikla trú á starfinu og umhverfinu þarna og trúi því að þetta sé besti staðurinn til að þróast sem leikmaður. Þjálfarateymið er sterkt, liðið er gott og umgjörðin er professional."

Hann segir að það hafi í sjálfum sér alveg komið til greina að vera áfram hjá Stjörnunni.

,,Ákvörðunin að yfirgefa uppeldisfélagið var ekki auðveld. Stjarnan hefur verið mitt lið síðan ég var krakki og augljóslega eru sterk tengsl við liðið. Ég valdi einfaldlega út frá því hvar ég taldi mig geta tekið mestum framförum á næstu árum og ég vildi takast á við nýjar áskoranir."

,,Síðustu þrjú ár hafa verið skemmtileg, lærdómsrík og krefjandi. Ég er mjög þakklátur að stjórnin og þjálfarateymin hafi gefið mér traustið varnarlega frá byrjun og gefið mér tækifæri og þjálfun til bætinga sóknarlega. Það er alltaf heiður og stolt sem fylgir því að klæðast bláu og standa fyrir uppeldisfélagið og Garðabæinn. Einnig mikil ánægja að hafa verið hluti af þessari vegferð og leikmannahóp síðustu þrjú árin og geta stækkað með jafnöldrum mínum úr 210 eins og Benedikt Marinó upp í ábyrgðarhlutverk innan liðsins. Það er líka geggjað að fá aðstoð frá reyndari leikmönnum eins og Tandra til að vaxa."

En hvernig gerir hann upp tímabilið sem var að klárast?

,,Miklar hæðir og lægðir einkenndu þetta tímabil. Það var frábært að sækja Meistara-meistaranna og Evrópu leikirnir okkar voru eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert í handboltanum. En brekkan sem einkenndi mikið af öðrum hlutum tímabilisins er eitthvað sem allir í liðinu hafa gott af því að upplifa og ég kem reyndari og sterkari úr tímabilinu. Sérstaklega þar sem við náðum að klára þetta umspil með ásættanlegum hætti. Við sýndum andlegan styrk að klára tímabilið eins og við gerðum, sérstaklega eftir að hafa lent 1-0 undir gegn Fjölni," sagði Jón Ásgeir en Stjarnan endaði í 11.sæti Olís-deildarinnar en tryggði veru sína í deild þeirra bestu eftir sigur á Herði í úrslitum umspilsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top