Úrslitin í yngri flokkunum ráðast í dag
Eyjólfur Garðarsson

Úrslitaleikir Íslandsmótsins í 4. og 3.flokki karla og kvenna fara fram í Kaplakrika í dag.

Það hefur verið sannkölluð handboltaveisla í Kaplakrika síðustu daga en undanúrslitaleikir Íslandsmótsins í 4. og 3.flokki karla og kvenna hafa farið fram í Kaplakrika síðustu daga. Nú er hinsvegar komið að úrslitastundu því úrslitaleikirnir fara fram í dag.

Efnilegustu leikmenn landsins hafa verið í eldlínunni en mikil spenna hefur verið í flestum leikjunum hingað til og tveimur leikjum þurfti meiri segja framlengingu til að knýja fram úrslit. Allir leikirnir hafa verið sýndir í Handboltapassanum og úrslitaleikirnir í dag verða einnig sýndir í Handboltapassanum.

Fjögur félög eiga lið í úrslitunum en HK á fjögur lið í úrslitunum í dag en meðal annars leika HK og HK 2 í úrslitaleik 4.flokks kvenna og er sennilega um að ræða einsdæmi. Valur á lið í úrslitum í 3.flokki karla og kvenna en ÍR á leið í úrslitum í 4.flokki karla og ÍBV í 3.flokki karla.

Dagskrá dagsins:

10:00 HK - HK 2 (4.flokkur kvenna)
12:00 HK - ÍR (4.flokkur karla)
14:00 Valur - HK (3.flokkur kvenna)
16:30 Valur - ÍBV (3.flokkur karla)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top