Þórsarar hafa verið öflugir á leikmannamarkaðnum síðustu vikur og ljóst að undirbúningur fyrir næsta tímabil er kominn á fullt skrið. Daniel Birkelund, þjálfari Þórs, segir þó að vinna félagsins hafi staðið yfir lengi og að bakvið hverja komu sé skýr hugsun. „Við höfum verið að vinna í þessu í nokkurn tíma,“ segir Daniel. „Ferlið með Bertram byrjaði í desember og með Mikkel og Oliver aðeins seinna, líklega í lok janúar eða byrjun febrúar.“ Persónuleg tenging er á bakvið komu Bertrams, sem kemur frá Lemvig í dönsku 1. deildinni þar sem Daniel starfaði áður en hann tók við Þór. „Ég þekki hann mjög vel. Hann er bæði mjög góður handboltamaður og frábær karakter. Þetta er leikmaður sem ég hlakka mikið til að vinna með aftur.“ Mikkel og Oliver komu hins vegar inn í gegnum tengslanet Daniels í Danmörku. „Ég þekkti þá ekki persónulega áður, en þeir komu mjög sterkt inn í umræðuna í gegnum fólk sem ég treysti.“ Daniel segir að leikmannakaupin snúist bæði um að styrkja liðið strax og bæta breiddina fyrir komandi tímabil. „Bertram er reynslumestur þeirra þriggja. Þó hann sé enn ungur hefur hann þegar spilað þrjú tímabil í dönsku 1. deildinni með liðum sem hafa verið í toppbaráttu. Ég tala ekki mikið um byrjunarlið á þessum tímapunkti, en væntingarnar eru klárlega þær að hann verði stór partur af okkar leik.“ Að hans sögn bætir Bertram inn ákveðnum eiginleikum sem hafi vantað í hópinn. Yngri leikmennirnir, Mikkel og Oliver, eru að stíga sín fyrstu alvöru skref í meistaraflokksbolta, en Daniel hefur mikla trú á þeim. „Þeir koma úr SHEA Academy og eru mjög vel handboltauppaldir. Þeir hafa líka verið að æfa reglulega með Skanderborg Aarhus og fengið mínútur í dönsku úrvalsdeildinni, þannig að ég er mjög öruggur með hæfileikana þeirra.“ Hann viðurkennir þó að það fylgi því alltaf ákveðin áskorun að taka unga leikmenn út fyrir þægindarammann. „Ísland er ekki Danmörk og Akureyri er ekki Árósar,“ segir hann brosandi. „Það verður margt nýtt fyrir þá og það getur verið ákveðin rússíbanareið með unga leikmenn á þessum aldri. En þeir munu klárlega leggja sitt af mörkum og ég býst við að þeir fái góðar mínútur.“ Þrátt fyrir að Þór hafi þegar verið mjög virkt á markaðnum útilokar Daniel ekki fleiri breytingar áður en tímabilið hefst. „Við erum nokkuð sátt með stöðuna eins og hún er í dag, en ef rétti leikmaðurinn kemur upp gæti alveg verið að við bætum við einum eða tveimur. Það er ekkert leyndarmál að við erum sérstaklega að leita að einum línumanni.“ Hann leggur þó áherslu á að framtíðarsýn félagsins snúist um meira en bara erlendar komur. „Nýir leikmenn fá eðlilega mikla athygli, en stór hluti af okkar stefnu fyrir næsta tímabil og til framtíðar er að bæta okkar eigið leikmannastarf. Við erum að breyta ansi miklu í því hvernig við vinnum með unga leikmenn hjá félaginu og ég tel að það fari að skila sér á næstu sex til níu mánuðum.“ Daniel segist vonast til þess að fleiri heimamenn fari að stíga upp í meistaraflokkinn á næstu misserum. „Vonandi sjáum við unga Þórsara byrja að fá stærri hlutverk á komandi tímabili.“ Einn þeirra leikmanna sem mest hefur verið rætt um síðustu vikur er William Skovsager, sem nú hefur verið staðfestur til félagsins. Daniel segir að sambandið við hann hafi í raun byrjað mun fyrr. „Við höfðum verið í samtölum við William í nokkurn tíma. Fyrstu samskiptin voru strax í janúar þegar við vorum að skoða möguleikann á að styrkja hópinn fyrir loka hluta síðasta tímabils. Þá gekk það ekki upp, en við héldum sambandi og erum mjög ánægð með að hann verði með okkur í sumar.“ Daniel lýsir honum sem leikmanni sem bæti bæði gæði og breidd í hópinn. „Hann er dæmigerður markaskorari sem gefur okkur fleiri möguleika og meiri kraft á báðum endum vallarins. Fyrir utan miðjumennina er hann síðasta púsluspilið hjá okkur, þannig að á þeim stöðum erum við nú klárir með leikmannamálin.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.