Meistarnir í markmannsvandræðum
Liselotte Sabroe / Ritzau Scanpix / AFP

Mikil óvissa hefur skapast hjá danska kvennaliði, Team Esbjerg fyrir mikilvægan undanúrslitaleik í dönsku deildinni gegn Ikast Håndbold á fimmtudaginn en Team Esbjerg sem eru ríkjandi deildarmeistarar eru 1-0 yfir í einvíginu gegn Ikast.

Liðið hefur orðið fyrir áfalli í markvarðarstöðunni þar sem bæði Anna Kristensen og Katharina Filter eru meiddar. Kristensen glímir við olnbogameiðsli og Filter hefur nú einnig bæst á meiðslalistann, sem skilur liðið eftir án aðalmarkvarða sinna fyrir leikinn á fimmtudag.

Til að bregðast við stöðunni hefur félagið gripið til óvæntrar lausnar. Norski landsliðsmarkvörðurinn Silje Solberg, sem átti að ganga til liðs við Esbjerg í sumar, hefur verið kölluð inn fyrr en áætlað var.

Einhverjir klóra sér í hausinn yfir því að landsliðsmarkvörður Noregs geti leikið með liðinu strax á fimmtudag. En málið er einfaldara en svo.

Hún hefur nefnilega ekkert leikið eftir að lið hennar, Vipers í Noregi fór á hausinn í janúar 2025. Esbjerg hafði þegar tryggt sér leikheimild fyrir Solberg fyrir lokafrest þann 15. febrúar, sem gerir henni kleift að spila strax. Hún er því líkleg til að stíga beint inn í liðið í einum mikilvægasta leik tímabilsins.

Óvíst er hvaða áhrif þessi skyndilega breyting mun hafa á leikinn, en ljóst er að Esbjerg þarf að treysta á nýjan markmann á ögurstundu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top