Egill Oddgeir yfirgefur ÍBV
Sævar Jónasson

Hinn örvhenti, Egill Oddgeir Stefánsson yfirgefur ÍBV í sumar þar sem hann er að flytja frá Vestmannaeyjum og hefur náð í höfuðborginni.

ÍBV greindi frá þessu á samfélagsmiðla síðu sinni þar sem Agli er þakkað fyrir tímann sinn hjá ÍBV.

Egill lék 17 leiki með ÍBV í Olís-deildinni í vetur og skoraði 10 mörk. Hann fékk aukið hlutverk í liðinu eftir að Elís Þór Aðalsteinsson meiddist á miðju tímabili.

,,Egill er uppalinn Vestmannaeyingur og hefur komið í gegnum yngri flokka félagsins áður en hann varð hluti af meistaraflokki. Það hefur verið gaman að fylgjast með honum vaxa og þroskast innan félagsins og leggja sitt af mörkum fyrir ÍBV. Við erum þakklát fyrir allt það sem hann hefur gefið félaginu í gegnum árin og óskum honum góðs gengis í námi og nýjum verkefnum, bæði innan handboltans og utan. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir ÍBV," segir í tilkynningunni frá ÍBV.

Egill lék einnig með liði HBH í Grill66-deildinni í vetur og skoraði 88 mörk í 20 leikjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top