
Eiðis Bóltfelag hefur gert samning við dönsku handboltastjörnuna Maria Fisker Stokholm til næstu tveggja ára. Maria mun bæði leika með liðinu og verða hluti af þjálfarateyminu. Þjálfari EB er Íslendingurinn, Kristinn Guðmundsson hefur þjálfað kvennalið EB undanfarin ár en hann var að klára sitt fimmta tímabil hjá félaginu. Hann tilkynnti á Facebook í morgun við athugasemd Karls Erlingssonar að hann væri hættur sem þjálfari kvennaliðsins og hafi fært sig yfir á karlalið félagsins. Maria kemur frá Viborg HK þar sem hún hefur nýlokið glæsilegum atvinnumannaferli. Hún hefur leikið 100 landsleiki fyrir danska kvennalandsliðið, skorað 250 mörk og vann HM-brons árið 2013. Um síðastliðna helgi vann hún til bronsverðlauna í Evrópudeildinni eftir sigur á Esztergomi í leiknum um bronsið. Undanfarin 22 ár hefur Maria leikið með félögum á borð við Viborg HK, Randers HK og CSM București. Þar af lék hún alls í 15 ár með Viborg HK. Maria býr yfir gríðarlegri reynslu og hefur unnið fjölda titla á ferlinum, þar á meðal landsmeistaratitla, bikarkeppnir, EHF Cup, EHF Cup Winners’ Cup og tvívegis EHF Meistaradeildina. Í tilkynningu frá félaginu segir að um sé að ræða eitt stærsta nafn sem hefur gengið í raðir færeyskt kvennaliðs. „Mig hlakkar til að verða hluti af hópnum og þjálfarateyminu. Ég er sannfærð um að EB sé rétti staðurinn fyrir mig og okkur sem fjölskyldu,“ sagði Maria Fisker Stokholm. Hjá EB ríkir bæði gleði og stolt yfir því að Maria hafi valið félagið og eru forsvarsmenn sannfærðir um að hún muni styrkja unga leikmannahópinn verulega. EB endaði í 7.sæti færeysku úrvalsdeildarinnar en átta lið leika í úrvalsdeildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.