Gæti Dagur Sig tekið við Flensburg?
Jonathan Nackstrand / AFP

Þýski miðillinn, Sport Bild segir frá því í dag að Aleš Pajović þjálfari Flensburg gæti hugsanlega verið á förum frá félaginu. Pajović er með samning við SG Flensburg-Handewitt til ársins 2027.

Ef Flensburg missir Pajović eru Dagur Sigurðsson, Misha Kaufmann og Talant Dujshebaev nefndir sem mögulegir arftakar hans.

Dagur er í dag þjálfari króatíska landsliðsins og þremur stórmótum með góðum árangri en liðið hefur farið í undanúrslit bæði á Evrópumótinu og heimsmeistaramótinu og unnið bæði til silfur og bronsverðlauna.

Samkvæmt Sport Bild er Aleš Pajović á lista yfir líklega þjálfara sem gætu tekið við liði RD Slovan Ljubljana í Slóveníu fari svo að Uros Zorman þjálfari liðsins taki við Kielce í Póllandi.

Talant Dujsebaev hætti á dögunum sem þjálfari liðsins og hefur Uros Zorman verið orðaður við pólska félagið. Ljóst er að Kielce þarf að leita af framtíðarþjálfara félagsins í sumar eftir að Talant hætti.

Arnar Freyr Arnarsson gengur í raðir Flensburg í sumar og Viggó Kristjánsson gengur síðan í raðir félagsins sumarið 2027.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top