Samkvæmt heimildum Handkastsins er Einar Rafn Eiðsson í viðræðum við sitt fyrrum félag, FH um að ganga í raðir félagsins frá KA. Handkastið greindi frá því fyrr á þessu ári að Einar Rafn og Unnur Ómarsdóttir væru að flytja í bæinn eftir veru sína á Akureyri undanfarin ár. Einar Rafn gaf það út að hann væri ekki hættur í handbolta og ætlaði að halda áfram á næsta tímabili. Nú virðist vera komin lending í það mál og virðist Einar Rafn vera á leið í FH. FH missti á dögunum hægri hornamanninn, Birgi Má Birgisson í atvinnumennsku og þá er samningur örvhentu skyttuna, Birkis Benediktssonar að renna út eftir eitt ár í Kaplakrikanum. Á dögunum gekk hægri skyttan, Ágúst Guðmundsson í raðir FH frá HK og því gæti FH verið búið að leysa málin með því að fá Einar Rafn til sín. ,,Staðan er bara þannig að við erum að vinna í öllum leikmannamálum hjá okkur og svosem litlu við það að bæta í dag," sagði Ágúst Bjarni Garðarsson formaður handknattleiksdeildar FH við Handkastið á dögunum þegar hann var spurður út í samningsstöðu Birkis Benediktssonar og hvort hann yrði áfram hjá félaginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.