
Markvörðurin, Petar Jokanovic hefur framlengt samningi sínum við ÍBV til ársins 2028. Þetta var tilkynnt á samfélagsmiðlum ÍBV í gær. Petar Jokanovic gekk til liðs við ÍBV árið 2019 og var því að klára sitt sjöunda tímabil hjá félaginu. ,,Petar hefur verið gríðarlega mikilvægur fyrir liðið með sinni miklu reynslu, öryggi og leiðtogahæfileikum fyrir okkar yngri markmenn. Hann hefur verið einn af lykilmönnum liðsins og stór þáttur í þeim árangri sem náðst hefur. Samhliða því hefur Petar verið að þjálfa yngri flokka félagsins þar sem hann hefur staðið sig virkilega vel. Það er afar mikilvægt fyrir félagið að hafa reynslumikinn einstakling eins og Petar í starfi með yngri iðkendum og við erum mjög ánægð að hann muni koma til að halda áfram því mikilvæga hlutverki hjá félaginu," segir í tilkynningunni frá ÍBV. Petar verður 36 ára í ágúst á þessu ári en hann myndaði markvarðarteymi með Morgan Goða Garner efnilegum markverði ÍBV sem er einnig í U18 ára landsliði Íslands. Þá á ÍBV annan markmann í sama landsliði, Sigmundur Gísli Unnarsson. Eyjamann eru því ekki í vandræðum með markvarðarstöðuna næstu árin en ÍBV tapaði í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins gegn KA 2-0 eftir að hafa endað í 4.sæti Olís-deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.