
Þýski landsliðsfyrirliðinn Johannes Golla hefur viðurkennt að hann horfi öðruvísi á ákvörðun sína um að ganga til liðs við MT Melsungen en hann gerði þegar samningurinn var undirritaður. Golla skrifaði undir fimm ára samning við Melsungen í desember 2024 og mun færa sig frá SG Flensburg-Handewitt sumarið 2026. Í hlaðvarpinu Hölle Nord ræddi línumaðurinn opinskátt um ástæðurnar á bak við ákvörðunina – og viðurkenndi jafnframt að hann væri ekki viss um að hann tæki sömu ákvörðun í dag. „Á þeim tíma fannst okkur þetta í raun vera eina lausnin,“ sagði Golla og vísaði þar til fjölskylduaðstæðna sinna. Hann útskýrði að hann og eiginkona hans hefðu þá verið með tvö ung börn, hann sjálfur mikið á ferðinni og fjölskyldan með litla hjálp þar sem foreldrarnir byggju í um 750 kílómetra fjarlægð. Samkvæmt Golla var ákvörðunin því fyrst og fremst tekin með hag fjölskyldunnar í huga, þar sem þau vildu flytja nær ættingjum og fá meiri stuðning í daglegu lífi en nú segir hann hins vegar að margt hafi breyst. „Í dag er allt orðið aðeins afslappaðra. Börnin okkar eru orðin eldri og okkur líður betur í borginni en þá,“ sagði Golla. Hann bætti við að fjölskyldan stæði áfram við ákvörðunina, en viðurkenndi jafnframt: „Ef ég gæti tekið ákvörðunina aftur í dag, þá veit ég ekki hvernig hún myndi falla.“ Þegar Golla samdi við Melsungen var félagið í toppbaráttu í þýsku Bundesligunni og á leið í Meistaradeild Evrópu. Síðan þá hefur gengi liðsins dalað og er félagið nú í sjöunda sæti deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.