Egill Oddgeir Stefánsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Egill er tvítugur Eyjamaður þar sem hann hefur leikið alla sína tíð. Hann er örvhent skytta. Hann skoraði 88 mörk í vetur með HBH í Grill 66 deildinni. Hann lék einnig með aðalliði ÍBV í Olísdeildinni þar sem hann skoraði 10 mörk og átti nokkrar flottar innkomur. Egill er sömuleiðis öflugur varnarmaður. Egill er að fara í nám á höfuðborgarsvæðinu og nú er ljóst að hann ákvað að velja Gróttu sem næsta áfangastað. "Egill mun smellpassa í Gróttuliðið og allt sem við stöndum fyrir. Hann er góður beggja megin vallarins og hlakka ég mikið til að vinna með honum“ sagði Andri Sigfússon þjálfari Gróttuliðsins í tilkynningu frá Gróttu í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.