Oddaleikur sker úr um þýska meistaratitilinn eftir dramatískan sigur Blomberg-Lippe
SVEN SIMON /AFP)

HSG Blomberg-Lippe tryggði sér sigur í öðrum úrslitaleiknum um þýska meistaratitilinn í handbolta kvenna með dramatískum 28:27 sigri á Borussia Dortmund á heimavelli í dag.

Borussia Dortmund hafði möguleika á að tryggja sér titilinn með sigri í leiknum, en heimakonur í Blomberg-Lippe náðu að snúa leiknum sér í vil á lokakaflanum vel studdar af sínum stuðningsmönnum.

Dortmund hafði undirtökin megnið af leiknum en sigurmarkið kom á lokasekúndunni þegar Alexia Hauf skoraði um leið og leiktíminn rann út og tryggði Blomberg-Lippe 28:27 sigur.

Andrea Jacobsen og Díana Dögg Magnúsdóttir skoruðu báðar þrjú mörk fyrir Blomberg-Lippe í dag en Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði 2 mörk.

Þar með er staðan í úrslitaeinvíginu jöfn og þarf oddaleik til að skera úr um hvor liðið verður þýskur meistari. Þriðji leikurinn fer fram 31. maí á heimavelli Blomberg-Lippe og þar geta íslensku landsliðskonurnar tryggt sér þýska meistaratitilinn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top