Frá Selfossi til Aranäs
Kristinn Steinn Traustason

Tveimur mánuðum eftir að Handkastið greindi frá því að Spánverjinn, Carlos Martin Santos væri hættur sem þjálfari Selfoss í Olís-deild karla og væri að taka við sænska liðinu, Aranäs hefur hann loks verið kynntur sem nýr þjálfari sænska liðsins.

Undir hans stjórn tryggði Selfoss sér sæti í Olís-deildinni á síðustu leiktíð eftir sigur á Gróttu í umspilinu og hélt liðið sæti sínu í deildinni á nýafstöðnu tímabili en liðið endaði í 10.sæti deildarinnar. Liðið var lengi vel í baráttu um sæti í úrslitakeppninni.

Sænska liðið Aranås endaði í 5.sæti sænsku B-deildarinnar en liðið komst ekki í umspil um laust sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili en liðið var tveimur stigum á eftir Kroppskultur sem endaði í 4.sæti deildarinnar.

Carlso kom fyrst til landsins og tók við Herði frá Ísafirði og kom liðinu upp í Olís-deildina á sínum tíma og stýrði liðinu þar eitt tímabil.

Selfoss er enn í leit af eftirmanni Carlosar fyrir næsta tímabil en Handkastið greindi frá því að Norðmaðurinn, Petter Grønstad var langt kominn með það að semja við Selfoss en tók síðan við kvennaliði Larvik í Noregi. Þá hefur Handkastið einnig greint frá því að Haraldur Þorvarðarson þjálfari kvennaliðs Fram hafi verið í viðræðum við Selfoss. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top