Mjög stoltur af því að spila fyrir Bandaríkin
Baldur Þorgilsson

Sigurður Jefferson Guarino og landar hans í bandaríska landsliðinu unnu forkeppni Norður-Ameríku og Karíbahafs fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári.

Dregið verður í riðlakeppni heimsmeistaramótsins í München 10. júní. Forkeppnin sem fram fór í Bettendorf í Iowa var skipuð fjórum þjóðum en Kúba dró landslið sitt úr keppni. Auk Bandaríkjanna og Grænlands tóku þátt Mexíkó og Kanada. Banaríkin tryggðu sér sæti á heimsmeistaramótinu með sigri á Grænlandi í lokaleik sínum í riðlinum. Bandaríkin unnu fjórtán marka sigur gegn Grænlandi 32-18.

Handkastið heyrði í bandaríska landsliðsmanninum, Sigurði Jefferson á dögunum en hann gekk nýverið í raðir bikarmeistara Hauka frá HK.

,,Heilt yfir gekk mótið vel. Við byrjuðum illa í fyrsta leik á móti Mexíkó en þegar við vorum komnir í gang þá rúlluðum við þessu móti upp. Við ætlum okkur að vera lang besta liðið í þessari heimsálfu og tókum gott skref með miklum yfirburðum í þessu móti," sagði Sigurður aðspurður út í spilamennsku bandaríska liðsins á mótinu.

,,Ég er búinn að stimpla mig vel inn í liðið og kem inn með mikinn kraft og orku sem ákveðinn mótor eða killler fyrir liðið. Á svona mótum þá er reynt að rótera liðinu vel og gefa öllum tækifæri. Ég er öðruvísi heldur en hinir línumennirnir í liðinu og kem með mikinn hraða í sókn og áræðni í vörn sem þeir vilja gjarnan nýta. Ég tala mikið við þjálfarana og þeir tala mikið gildi á mínu sjónarhorni og það sem ég kem með inni liðið og ég vera partur af kjarnanum sem mun vera í hóp í næstu stórmótum."

,,Ég er mjög stoltur af því að spila fyrir Bandaríkin. Þetta er stór hluti af minni persónu og ástæða fyrir að velja að taka þátt í þessu verkefni með bandaríska liðinu var til að styrkja tengsl mín við einmitt þessa hlið og til að öðlast reynslu og tækifæri sem eru alveg einstök. Ég er ekki búinn að vera lengi í þessu liði en á þessu einu og hálfu ári sem ég hef verið partur af þessu finn ég og sé miklar framfarir í gæðum innan og utanvallar."

En hvernig eru gæðin á leikmönnum bandaríska liðsins?

,,Þetta eru auðvitað leikmenn með allskonar bakgrunn sem spila víða um heiminn á mismunandi stigum en það býr mikill metnaður í liðinu til að verða betri. Það er mikil samkeppni og alls ekki gefið sæti að fá að vera í þessu landsliði þannig allir vinna að því að koma með sinn besta leik þegar við komum saman. Ég er mjög spenntur fyrir framhaldinu," sagði línumaðurinn öflugi, Sigurður Jefferson að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top