Bessi í Val
Valur handbolti

Vinstri hornamaðurinn, Bessi Teitsson hefur gengið í raðir Íslands- og deildarmeistara Vals frá uppeldisfélagi sínu Gróttu.

Handkastið greindi frá því í febrúar að Bessi væri á leið í Val og nú hefur félagið staðfest fréttirnar.

Bessi hefur skrifað undir þriggja ára samning við Val.

,,Bessi, sem er vinstri hornamaður, er uppalinn í Gróttu og hefur alla tíð spilað með uppeldisfélagi sínu. Hann var í lykilhlutverki með Gróttu á síðasta tímabili í Grill 66 deildinni. Bessi á einnig sæti í lokahóp 20 ára landsliðsins sem leikur í lokakeppni EM í sumar og hefur verið í öllum yngri landsliðum Íslands" segir í tilkynningunni frá Val.

,,Ég er gríðarlega ánægður með að fá Bessa til liðs við félagið. Hann er ungur og mjög efnilegur leikmaður með mikla hæfileika og metnað til að ná langt. Hans eiginleikar munu nýtast vel inn í hópinn okkar fyrir næstu leiktíð. Ég hlakka til samstarfsins á næstu árum,” sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari karlaliðs Vals en Ágúst er jafnframt þjálfari Bessa í U20 ára landsliði Íslands.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top