
Vinstri hornamaðurinn, Andri Þór Helgason hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt HK og leikur áfram með liðinu næstu tvö árin. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu. Andri Þór gekk í raðir HK fyrir tveimur árum frá Aftureldingu en þar áður lék hann með Gróttu, Stjörnunni og Fram. ,,Andri Þór er uppalinn HK-ingur og hefur verið afar mikilvægur hlekkur í leikmannahópi félagsins og þeirri vegferð sem HK er á. Það er því mikið gleðiefni fyrir félagið að einn af okkar eigin haldi áfram í HK búningnum á komandi árum," segir í tilkynningunni frá HK. Andri skoraði 98 mörk fyrir HK á tímabilinu sem endaði í 8.sæti Olís-deildarinnar en tapaði í 8-liða úrslitum gegn Íslandsmeisturum Vals í 8-liða úrslitunum. Hann var fjórði markahæsti leikmaður HK á tímabilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.