Spáir því að Selfoss falli úr Olís-deildinni á næstu leiktíð
Sigurður Ástgeirsson

Í nýjasta þætti Handkastsins voru Stymmi klippari og Kristinn Björgúlfsson beðnir um að koma með sín "Hot take" eða umdeilda skoðun fyrir næstu leiktíð í Olís-deild karla og kvenna.

Stymmi klippari reið á vaðið og spáði því að karlalið Selfoss myndi falla úr Olís-deildinni og enda í neðsta sæti deildarinnar.

,,Mín umdeilda skoðun er sú að Selfoss fellur beint úr Olís-deild karla á næstu leiktíð. Eftir brotthvarf Carlos Martin Santos, þeir falla beint. Ég held að þetta verði erfiður vetur. Carlos var með þvílíkan aga á þessu og það er ekki enn kominn nýr þjálfari. Þeir fá stig og einhver stig en ég held að þeir falli beint. Second season syndrome.”

,,Litlu sokkapörin sem þú færð frá Selfossi núna," bætti Arnar Daði Arnarsson, þáttastjórnandi Handkastsins við.

,,Ég get ekki beðið eftir að vegurinn framhjá Selfossi komi en á meðan reykspóla ég í gegnum Selfoss á mínu ferðalagi í sumar," sagði Stymmi klippari að lokum.

Carlos Martin Santos þjálfari liðsins síðustu ár hætti með liðið eftir tímabilið og er Selfoss enn án þjálfara þegar við erum að ganga inn í júní. Liðið var nýliði í Olís-deildinni í ár og gerði frábæra hluti, hluti sem fáir höfðu gert ráð fyrir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top