Uppselt á fyrsta leikinn í úrslitaeinvíginu í Danmörku
STEFAN PANAITESCU / NurPhoto via AFP

Mikil spenna ríkir fyrir fyrsta leikinn í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitil kvenna sem fram fer í kvöld þegar Team Esbjerg tekur á móti Odense í Blue Water Dokken höllinni í Esbjerg.

Samkvæmt framkvæmdastjóra félagsins, H.C. Warrer er uppselt á leikinn í kvöld. Um er að ræða um 2.500 sæti, auk tæplega 900 miða í stæði.

Áhorfendafjöldinn verður því talsvert meiri en gengur og gerist á venjulegum deildarleik en meðalfjöldi áhorfenda á heimaleikjum Team Esbjerg í vetur hefur verið rúmlega 1800 manns.

,,Það er gríðarlegur áhugi fyrir leiknum og það gleður okkur mjög. Það á líka að vera mikil stemning í úrslitaleik um meistaratitilinn. Við treystum á að stuðningsmennirnir skapi frábæra umgjörð og hjálpi liðinu að taka fyrsta sigurinn í einvíginu,“ sagði H.C. Warrer í samtali við Avisen Danmark.

Um er að ræða tvö bestu lið Danmerkur undanfarin ár en félögin hafa einokað danska meistaratitilinn frá árinu 2017/2018. Team Esbjerg hefur þrívegis verið danskur meistari á því tímabili og Odense einnig.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18:30 en Team Esbjerg eru ríkjandi deildarmeistarar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top