Vinstri hornamaðurinn, Hákon Daði Styrmisson verður samkvæmt heimildum Handkastsins kynntur sem nýr leikmaður Aftureldingar. Hákon Daði gengur þar með í raðir Aftureldingar eftir hálfs árs dvöl hjá uppeldisfélagi sínu ÍBV þar sem hann lék með liðinu eftir áramót í Olís-deild karla eftir dvöl erlendis síðustu ár. Hann flutti heim af persónulegum um áramótin en hann eignaðist sitt fyrsta barn fyrr á þessu ári með unnustu sinni og vildu þau eignast barnið á Íslandi. Handkastið hafði áður greint frá því að Hákon Daði hafi verið í viðræðum bæði við Aftureldingu og nýliða Víkings en nú virðist allt benda til þess að hann leiki með Aftureldingu í Olís-deildinni á næstu leiktíð og verði þar með annar leikmaðurinn sem gengur í raðir félagsins en Hans Jörgen Ólafsson gekk í raðir Aftureldingar frá Stjörnunni. Afturelding er enn án þjálfara eftir að Stefáni Árnasyni var sagt upp störfum eftir tímabilið en samkvæmt áreiðanlegum heimildum Handkastsins verður Hrannar Guðmundsson fyrrum þjálfari Stjörnunnar næsti þjálfari Aftureldingar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.