
Aron Pálmarsson var í dag kynntur sem nýr þjálfari karlaliðs FH og tekur við liðinu af Sigursteini Arndal sem hefur stýrt liðinu síðustu sjö tímabil. Sigursteinn gerði í september þriggja ára samning við FH en nú hafa orðið breytingar á þjálfarateyminu og stígur Sigursteinn til hliðar og gerist aðstoðarþjálfari liðsins. Í viðtali við Handkastið á blaðamannafundi sem FH hélt í Kaplakrika í dag sagði Sigursteinn meðal annars að ákvörðunin hafi legið fyrir í tvo mánuði. Það væri því langt síðan það varð ljóst að Aron myndi taka við liðinu. Hann staðfestir að það hafi legið fyrir alla úrslitakeppnina að Aron myndi taka við í sumar en félagið hafi beðið mig að tilkynna þetta þar sem bæði Aron og Sigursteinn fóru erlendis í frí eftir tímabilið. Viðtalið við Sigurstein má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.