Tryggvi Garðar á leið til Noregs
Kristinn Steinn Traustason

Tryggvi Garðar Jónsson er samkvæmt heimildum Handkastsins á leiðinni til Noregs og mun leika í norsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Tryggvi Garðar fer til Noregs eftir eitt ár í Austurríki þar sem hann lék undir stjórn Hannesar Jóns Jónssonar hjá Alpla Hard. Tryggvi Garðar gekk í raðir Alpla Hard síðasta sumar eftir að hafa orðið bæði Íslands- og bikarmeistari með Fram á sínu öðru tímabili með félaginu.

Tryggvi Garðar sem er uppalinn hjá Val er samkvæmt heimildum Handkastsins að ganga í raðir nýliða Viking TIF sem enduðu í 2.sæti norsku 1.deildarinnar en liðið vann úrvalsdeildarlið Halden í umspili um laust sæti í norsku úrvalsdeildinni 2-1.

Samkvæmt heimildum Handkastsins höfðu Íslandsmeistarar Vals áhuga á að fá Tryggva Garðar heim á Hlíðarenda en skyttan stóra og stæðilega hefur ákveðið að framlengja dvöl sinni erlendis.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top