
Bruno Bernat hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og leikur því áfram með sínu uppeldisfélagi næstu árin. Þetta tilkynnti KA á heimasíðu sinni nú rétt í þessu. Bruno sem er 24 ára hefur leikið með KA í Olís-deild karla undanfarin ár. ,,Bruno hefur heldur betur staðið fyrir sínu í marki KA liðsins undanfarin ár og nú er ljóst að áframhald verður á því," segir í tilkynningunni frá KA og ljóst að KA menn verða ekki á flæði skeri standir með markmenn á næsta tímabili en Ágúst Elí Björgvinsson gekk í raðir félagsins um áramótin frá Ribe-Esbjerg. ,,Bruno kom af krafti ungur inn í markið í meistaraflokksliði KA veturinn 2020-2021 þar sem hann sýndi strax hve öflugur leikmaður hann er og verið í lykilhlutverki síðan. Hann hefur nú leikið 143 leiki fyrir KA í deild, bikar og evrópu. Hann hefur undanfarin ár verið með eina bestu hlutfallsmarkvörsluna í deildinni og þá lék hann á sínum tíma með U21 árs landsliði Íslands." ,,Við erum afar spennt fyrir því að halda Bruno áfram innan okkar raða en auk þess að vera frábær í markinu er Bruno þekktur fyrir frábærar sendingar upp völlinn sem hafa gefið fjölmörg mikilvæg hraðaupphlaupsmörk undanfarin ár. Þá er hann einnig mikill félagsmaður og vinnur ötullega í starfinu í kringum KA sem er ómetanlegt," segir í tilkynningunni frá KA.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.