
Sveinn Jóhannsson leikmaður Chambéry í frönsku úrvalsdeildinni skoraði þrjú mörk í tveggja marka sigri liðsins á Limoges á útivelli í gærkvöldi. Leikurinn var liður í 28.umferð frönsku deildarinnar. Chambéry vann leikinn 37-35 eftir að hafa verið 19-17 yfir í hálfleik. Chambéry hafði mikla yfirburði í seinni hálfleik og náði mest sjö marka forystu en heimamenn í Limoges minnkuðu muninn undir lok leiks í eitt mark en Chambéry skoraði lokamark leiksins og tryggði sér tveggja marka sigur. Chambéry er í 5. sæti deildarinnar en tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Limoges er í 4.sætinu, með þremur stigum meira en Chambéry og þarf því allt að ganga upp hjá Sveini og félögum ef þeir ætla sér upp fyrir Limoges í töflunni. Chambéry á meðal annars eftir að mæta PSG sem varð franskur meistari á dögunum og botnliði Istres.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.