
Vinstri hornamaðurinn, Viktor Breki Róbertsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Stjörnuna. Viktor Breki sem er fæddur árið 2008 gerir tveggja ára samning við sitt uppeldisfélag. Stjarnan segir í tilkynningu sinni að það sé mikið gleðiefni fyrir félagið að Viktor hafi skrifað undir sinn fyrsta samning við Stjörnuna. ,,Hann er alinn upp hjá okkur í Stjörnunni og því er okkur sérstök ánægja að sjá einn af okkar eigin skrifa undir sinn fyrsta samning. Viktor er eldfljótur hornamaður og sterkur slúttari. Viktor á framtíðina fyrir sér og við hlökkum mikið til að fylgjast með honum blómstra í bláu treyjunni," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. Viktor Breki skoraði 63 mörk í 13 leikjum með Stjörnunni 2 í 2.deildinni í vetur og þá var hann einnig í stóru hlutverki með 3.flokki félagsins. Þá var hann tvívegis í leikmannahópi Stjörnunnar í Olís-deild karla í vetur en liðið endaði í 11.sæti deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.