Eru Valsmenn með eftirmann Dags Árna klárann?
Egill Bjarni Friðjónsson

Í nýjasta þætti Handkastsins var rætt um breytingarnar á leikmannahópi Íslands- og deildarmeistara Vals en Benedikt Gunnar Óskarsson hefur verið orðaður við heimkomu á Hlíðarenda frá Kolstad.

Dagur Árni Heimisson var tilkynntur sem nýr leikmaður KA í gær eftir eins árs dvöl á Hlíðarenda en Dagur Árni var keyptur til Vals frá KA á metfé síðasta sumar. Dagur Árni glímdi við meiðsli nær allt tímabilið en hann lék aðeins nokkrar mínútur með Val eftir áramót.

,,Ef Dagur Árni er að fara norður, þá er Valur með eitthvað annað klárt. Þeir eru ekki að hleypa Degi norður nema var með eitthvað annað," sagði Stymmi klippari þegar rætt var um mögulega heimkomu Benedikts Gunnars.

,,Dagur er farinn norður,” sögðu Arnar Daði og Kristinn í kór og fullyrtu á sama tíma að Dagur Árni myndi leika með KA á næstu leiktíð og reyndist það rétt hjá þeim félögum.

Það verður því spennandi að sjá hvern eða hverja Valur sækir til að fylla í skarðið sem Dagur Árni skilur eftir sig á Hlíðarenda.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top