Þjóðverjinn framlengir á Nesinu
Grótta

Línumaðurinn Hannes Grimm hefur framlengt samningi sínu við Gróttu til ársins 2028. Þar með er ljóst að hann leikur áfram með liðinu í Grill66-deildinni á næstu leiktíð líkt og á síðustu leiktíð.

,,Það þarf vart að kynna Hannes Grimm fyrir Gróttufólki en hann er alinn upp á Nesinu og hefur verið fyrirliði Gróttuliðsins undanfarin ár," segir í tilkynningunni frá félaginu.

Hannes á 216 leiki fyrir Gróttu og hefur skorað í þeim 319 mörk hann er lang leikjahæsti leikmaður Gróttu í dag. Þá segir í tilkynningunni að Hannes hafi undanfarin níu ár þjálfað yngri flokka félagsins við góðan orðstír.

„Það eru frábær tíðindi að Hannes verði áfram í herbúðum félagsins enda lykilleikmaður liðsins bæði sóknarlega og varnarlega. Það er hugur í okkur Gróttumönnum og er Hannes mikilvægt púsl á þeirri leið," sagði Andri Sigfússon þjálfari Gróttuliðsins við undirritun samningsins en Andri tók við liðinu á dögunum af þeim Davíð Erni Hlöðverssyni og Lárusi Gunnarssyni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top