FH-ingar gerðu upp tímabilið

Lokahóf handknattleiksdeildar FH var haldið með pompi og prakt á Ölhúsinu í Hafnarfirði nú á dögunum. Leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og sjálfboðaliðar fjölmenntu á hófið sem var virkilega vel heppnað.

Fjölmörg verðlaun voru veitt, sem og aðrar viðurkenningar.

Mfl. karla FH

- Besti leikmaður: Garðar Ingi Sindrason

- Efnilegasti leikmaður: Ómar Darri Sigurgeirsson

- Mikilvægasti leikmaður: Jón Bjarni Ólafsson

- RISA-bikar baráttuanda og FH-hjarta: Birgir Már Birgisson

Mfl. kvenna FH

- Besti leikmaður: Szonja Szöke

- Efnilegasti leikmaður: Eva Guðrúnardóttir Long

- Mikilvægasti leikmaður: Thelma Dögg Einarsdóttir

- RISA-bikar baráttuanda og FH-hjarta: Telma Medos

ÍH

- Besti leikmaður: Bjarki Jóhannsson

- Efnilegasti leikmaður: Brynjar Narfi Arndal

- Mikilvægasti leikmaður: Benedikt Elvar Skarphéðinsson

- Baráttubikarinn: Þórarinn Þórarinsson

Áfangaleikir

- Garðar Ingi Sindrason: 100 leikir

- Gyða Kristín Ásgeirsdóttir: 100 leikir

- Símon Michael Guðjónsson: 100 leikir

- Leonharð Þorgeir Harðarson: 200 leikir

- Jakob Martin Ásgeirsson: 300 leikir

Silfurmerki FH með lárviðarsveig fyrir 20 ára frábært starf fyrir FH

- Hilmar Bjarki Snorrason

- Hilmir Lundevik

- Sigrún Gilsdóttir

Sjálfboðaliðaviðurkenning fyrir frábært framlag til hkd. FH

- Ásdís Björk Kristjánsdóttir

- Björgvin Þór Þorgeirsson

- Lísa Sigurðardóttir

Garðar Ingi, Birgir Már og Ágúst Birgisson voru kvaddir og þakkað fyrir þeirra ómetanlega framlag til félagsins. Garðar Ingi og Birgir Már halda út í atvinnumennsku í sumar og fyrirliðinn Ágúst Birgisson hefur lagt skóna á hilluna.

Ólafi Guðlaugssyni var þakkað sérstaklega fyrir hans stjórnarsetu og sjálfboðaliðastörf fyrir félagið. Þá voru Einari Andra Einarssyni og Sigurgeiri Árna Ægissyni veittur þakklættisvottur fyrir góð störf.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top