Hægri hornamaðurinn sem einnig spilaði í hægri skyttunni hjá FH í vetur, Kristófer Máni Jónasson hefur leikið sinn síðasta leik í bili fyrir FH í Olís-deild karla. Kristófer Máni heldur í sumar til Seattle í Bandaríkjunum í meistaranám í byggingar- og fasteignastjórnun. Kristófer Máni gekk í raðir FH í lok október frá Val eftir að Arnór Snær Óskarsson gekk í raðir Vals frá Kolstad. Hann var þriðji markahæsti leikmaður FH í úrslitakeppninni með 36 mörk en FH tapaði í oddaleik gegn Val um Íslandsmeistaratitlinn. ,,Við óskum Mána góðs gengis í náminu og vonumst til að sjá hann aftur í FH-treyjunni að námi loknu," segir í tilkynningunni frá FH.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.