Skrokkurinn farinn að láta vita meira af sér
Eyjólfur Garðarsson

Ísak Rafnsson gaf það út á dögunum að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna

Ísak sem er uppalinn hjá FH og lék þar upp alla yngri flokka félagsins. Hann lék með meistaraflokki félagsins til ársins 2018 þegar hann samdi við aust­ur­ríska félagið Schwaz. Hann lék með Schwaz eitt tímabil þar til hann snéri aftur heim í FH.

Hann lék með FH þar til hann færði sig um set til ÍBV sumarið 2022 og hefur leikið með Eyjamönnum undanfarin ár og varð Íslandsmeistari með liðinu 2023 eftir sigur á Haukum í úrslitaeinvíginu í oddaleik.

En afhverju ætli skórnir séu farnir á hilluna hjá Ísaki?

,,Ástæðan er í raun sú að ég fann það fyrir sirka ári síðan að þetta var farið að verða gott hjá mér. Skrokkurinn farinn að láta vita meira af sér. Mér fannst mikilvægt að hætta áður en maður verður alveg orðinn handónýtur," sagði Ísak í samtali við Handkastið en Ísak hefur verið að glíma við meiðsli undanfarin ár sem hefur haft áhrif á spil mínútur hans inn á vellinum.

,,Tíminn minn hjá ÍBV er búinn að vera frábær. Hér hef ég kynnst helling af frábæru fólki og liðið vel. Starfið er mjög gott og stefnan alltaf sett á titla. Síðustu tvö tímabil hjá mér hafa því miður litast aðeins af meiðslum og árangurinn kannski ekki alveg eftir væntingum."

Ísak segist ganga stoltur frá borði en hann lék á yngri árum með öllum yngri landsliðum Íslands.

,,Ég er mjög stoltur af ferlinum mínum. Ég fékk að spila með frábærum liðum og leikmönnum sem hafa allir hjálpað til við að móta mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Það eru mörg skemmtileg augnablik og kannski þrjú augnablik sem standa sérstaklega uppúr. Það var mjög skemmtilegt að verða deildarmeistari með FH, Íslandsmeistari eftir oddaleik með ÍBV gegn Haukum og svo get ég ekki annað en minnst á vítakastkeppnina sem fram fór í Rússlandi. Það var virkilega skemmtilegt að hafa flogið spes ferð til Rússlands til að taka eina vítakeppni og ekki skemmdi fyrir að hafa klárað það með sigri," sagði Ísak að lokum í samtali við Handkastið.

Hægt er að lesa um umrædda vítakastkeppni og ástæðuna fyrir henni meðal annars hér.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top