Andri og Hafdís best hjá Íslandsmeisturunum
Baldur Þorgilsson

Lokahóf Íslandsmeistaraliða Vals fór fram um helgina en bæði karla og kvennalið félagsins urðu Íslandsmeistarar á tímabilinu. Þá urðu bæði lið deildarmeistarar og kvennaliðið varð einnig bikarmeistari.

Mikið var um dýrðir og stemningin frábær er leikmenn, stjórn og sjálfboðaliðar fögnuðu frábæru keppnistímabili segir í færslu Vals á samfélagsmiðla síðu sinni.

Andri Finnsson og Hafdís Renötudóttir voru valin bestu leikmenn tímabilsins.

Hér að neðan má sjá þau verðlaun sem veitt voru á lokahófinu.

Meistaraflokkur karla:

Efnilegastur:

Dagur Leó Fannarsson

Bestur:

Andri Finnsson

Mikilvægastur:

Arnór Snær Óskarsson

Meistaraflokkur kvenna

Efnilegust:

Arna Karitas Eiríksdóttir

Best:

Hafdís Renötudóttir

Mikilvægust:

Lovísa Thompson

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top