Esbjerg danskur meistari í sjötta sinn eftir sigur á Odense
STEFAN PANAITESCU / NurPhoto via AFP

Team Esbjerg tryggði sér á þriðjudagskvöldið danska meistaratitilinn í sjötta sinn í sögu félagsins með 35-29 sigri á Odense Håndbold í oddaleik úrslitaeinvígisins. Leikið var í Blue Water Dokken þar sem Esbjerg stóðst pressuna í lokaleik tímabilsins og tryggði sér titilinn fyrir framan heimafólk sitt.

Esbjerg var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 19-17, en það var einkum í síðari hálfleik sem heimaliðið náði tökum á leiknum.

Odense hélt sér inni í leiknum framan af síðari hálfleik og eftir 36 mínútur var staðan 22-21. Þá kom afgerandi kafli í leiknum. Live Rushfeldt Deila skoraði fyrst fyrir Esbjerg og kom liðinu í 23-21. Í kjölfarið bættu Helene Kindberg, Zoë Sprengers og Michala Møller við mörkum og á sex mínútna kafla breyttist staðan úr 22-21 í 27-21.

Á meðan skoraði Odense ekki eitt einasta mark og Esbjerg hafði þar með lagt grunninn að meistaratitlinum. Skömmu síðar kom Henny Reistad liðinu í 28-21 og eftir það náði Odense aldrei að ógna forystunni að ráði. Þegar níu mínútur voru eftir var munurinn orðinn níu mörk, 33-24, og úrslitin í raun ráðin.

Reistad var markahæst hjá Esbjerg með átta mörk úr níu skotum og skoraði einnig úr öllum þremur vítaköstum sínum. Zoë Sprengers bætti við sex mörkum og Helene Kindberg skoraði fimm mörk úr sex skotum. Live Rushfeldt Deila átti einnig stórleik með þremur mörkum og sjö stoðsendingum.

Hjá Odense var Mie Højlund markahæst með sex mörk. Viola Leuchter skoraði fimm sinnum og Ragnhild Dahl fjögur mörk, öll úr vítaköstum.

Silje Solberg stóð vaktina í marki Esbjerg stærstan hluta leiksins og varði níu skot. Emma Friberg kom inn á lokakaflanum. Hjá Odense var Yara ten Holte með átta varin skot og Althea Reinhardt varði fjögur.

Með sigrinum vann Team Esbjerg danska meistaratitilinn í sjötta sinn og lauk úrslitaeinvíginu með sannfærandi sigri á heimavelli.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top