Það var heldur betur mikil dramatík þegar Íslendingaliðið í þýsku úrvalsdeildinni, Blomberg-Lippe vann sinn fyrsta þýska meistaratitil á sunnudaginn þegar liðið lagði Dortmund af velli 30-26 á heimavelli og einvígið þar með 2-1. Með Blomberg-Lippe leikur íslenska þríeykið, Andrea Jacobsen, Elín Rósa Magnúsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir en sú fyrst nefnda yfirgefur félagið í sumar og gengur í raðir ÍBV í Olís-deild kvenna. Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir skoruðu báðar fjögur mörk fyrir Blomberg-Lippe en Andrea Jacobsen skoraði 3 mörk. Á samfélagsmiðlum Instagram má sjá skemmtilegt myndskeið af varamannabekk Blomberg-Lippe í aðdraganda og þegar ljóst varð að liðið hafði unnið leikinn og þar með tryggt sér þýska meistaratitilinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.