Var að leita að breytingu – Fannst Aranäs passa fullkomlega
Egill Bjarni Friðjónsson

Eftir sjö ár Íslandi hefur Spánverjinn, Carlos Martin Santos ákveðið að breyta til og skrifaði á dögunum undir samning við sænska 1.deildarliðið HK Aranäs eftir að hafa verið á Selfossi síðustu þrjú tímabil.

Þar áður var hann fjögur ár sem þjálfari Harðar á Ísafirði og stýrði liðinu meðal annars eitt tímabil í Olís-deild karla. Carlos gerði frábæra hluti á Selfossi og var meðal annars valinn þjálfari ársins á Handkastinu eftir veturinn en hann hélt nýliðum Selfossi upp á sannfærandi hátt en margir höfðu spáð því að Selfoss myndu falla rakleitt aftur niður í Grill66-deildina.

Handkastið heyrði í Carlosi og sendi á nokkrar spurningar stuttu eftir að hann samdi við sænska félagið.

Geturðu sagt okkur aðeins frá félaginu, HK Aranäs?

Þetta er félag staðsett í Kungsbacka, nálægt Gautaborg (20 mínútur), og bærinn er mjög fallegur og rólegur. Félagið leggur áherslu á þróun leikmanna, þau eru með 1.300 krakka í handbolta, bæði karla- og kvennalið. Á þessu ári munu bæði liðin spila í næstefstu deild, en kvennaliðið var í efstu deild í fyrra og karlaliðið fyrir þremur árum.
Þau hafa unnið mjög vel síðustu ár í yngri flokkum og það sést á framförunum; U16 og U18 liðin komust í úrslit sænska meistaramótsins og U18 ára liðið vann gullverðlaun.

Hvenær heyrðir þú fyrst af áhuga þeirra á þér?

Eftir að ég ákvað að fara frá Selfossi, nokkrum dögum síðar, var ég ekki viss um hvað ég vildi gera og ég ræddi við marga vini um hvert næsta skref ætti að vera. Í einu af þessum samtölum nefndi Dani Gordo við mig að lið í Svíþjóð væri að leita að þjálfara því hann þekkti íþróttastjórann þar. Nokkrum dögum síðar höfðu þau samband við mig til að athuga hvort við gætum átt fund og síðan þá komu fjórir fundir í viðbót og ég ákvað að ganga til liðs við félagið.

Varstu strax spenntur fyrir þessu verkefni?

Ég var að leita að breytingu og mér finnst HK Aranäs passa fullkomlega því þetta er félag sem byggir á ungum leikmönnum, þannig að það er svipað og Selfoss og vinnan sem ég var að þróa þar. Þetta gefur mér líka tækifæri til að búa í öðru landi, læra nýja menningu, nýja hluti í handbolta og ögra sjálfum mér aftur með því að byrja frá grunni í öðru landi, þannig að ég myndi segja já.

Voru önnur tækifæri í boði fyrir þig?

Já, reyndar. Ég var mjög ánægður með það því það var orðið seint á tímabilinu og þrátt fyrir það fékk ég þrjú önnur tilboð frá Spáni, Sviss og Ítalíu. Svo já, það var frábært að finna fyrir áhuga frá öðrum félögum .

Hvert er markmið félagsins?

Ég held að fyrsta markmiðið sé að ýta undir þróun heimamanna og bæta þá svo þeir verði grunnurinn að meistaraflokki karla. Eins og ég sagði áður eru þau með mjög marga iðkendur, en það mun taka tíma að koma þeim á þann stað. Til að vera raunsær þá komst liðið í umspil um sæti í efstu deild fyrir tveimur tímabilum en náði ekki alla leið. Á þessu tímabili enduðu þau einu stigi frá umspilssæti og nú er liðið að missa þrjá af sínum bestu leikmönnum frá þessum tveimur tímabilum. Hugmyndin er því að endurbyggja liðið, aðlaga það nýjum þjálfara og reyna að vera tilbúin á mínu öðru tímabili til að berjast um sæti í umspili eða fara beint upp, en það er mikil vinna fram undan.

Hvernig ber styrkleikinn í sænsku úrvalsdeildinni sig saman við Olís-deild karla?

Ég var að skoða nokkra leikmenn í efstu deild sem höfðu áður spilað hér og við vorum að hugsa um að fá þá aftur til félagsins. Ég myndi segja að þetta sé mjög svipað og á Íslandi, kannski stærri leikmenn hérna (háir og sterkir), en tempóið í leikjunum er mjög svipað. Munurinn á liðunum er líka þannig að ef þú tekur tvö til þrjú bestu liðin út úr myndinni þá geta allir unnið alla, sem er jákvætt. En ég þarf meiri tíma til að horfa á fleiri leiki og mynda mér betri skoðun á þessu.

Þú bjóst á Íslandi í nokkur ár — hvað heldurðu að þú eigir eftir að sakna mest við Ísland?

Ég kom fyrst til Íslands í ágúst 2019 svo ég hef verið þarna í nokkurn tíma. Ég held að ég muni sakna margra hluta; þetta er yndislegt land og líklega ein besta reynsla lífs míns. Ég meina, ég sá eldgos í raunveruleikanum, norðurljósin á Vestfjörðum eru á allt öðru leveli og ég hef komið á svo marga fallega staði þar. Og svo auðvitað marga vini sem ég mun eiga að eilífu, fólk sem hefur hjálpað mér öll þessi ár og ég get litið á sem fjölskyldu. Svo já, vonandi er þetta bara „sjáumst!“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top