Aron Breki Oddnýjarson verður áfram í Grafarvoginum næstu tvö tímabilin en hann hefur framlengt samningi sínum við félagið. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni fyrr í dag. Aron Breki sem er uppalinn í Fjölni hefur leikið með liðinu undanfarin tímabil bæði í Grill66-deildinni og í Olís-deildinni en Fjölnir leikur í Grill66-deildinni á næsta tímabili eftir að hafa tapað gegn Stjörnunni 2-1 í undanúrslitum umspilsins. ,,Aron Breki hefur verið mikilvægur hluti af starfi félagsins um árabil. Hann er ekki aðeins öflugur leikmaður innan vallar heldur einnig afar dýrmætur félagsmaður sem ber hag Fjölnis fyrir brjósti og hefur mikla ástríðu fyrir uppbyggingu félagsins. Leikmenn sem hafa alist upp innan félagsins gegna lykilhlutverki í að varðveita sögu þess, gildi og menningu og þar er Aron Breki engin undantekning. Framlenging Arons Breka er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu meistaraflokks karla, þar sem félagið leggur áherslu á að byggja á sterkum kjarna uppalinna leikmanna sem vilja leggja sitt af mörkum til framtíðar félagsins," segir í tilkynningunni frá Fjölni. „Það er okkur sönn ánægja að halda áfram samstarfi við Aron Breka, sem er ekki aðeins frábær leikmaður heldur einnig mikilvæg fyrirmynd í kringum starfið. Við erum spennt fyrir að sjá hann taka stórt hlutverk næsta vetur og blómstra áfram í gulu og bláu,“ sögðu Sveinn Þorgeirsson og Daníel Rúnarsson fyrir hönd meistaraflokksráðs karla. Aron Breki segist sjálfur hlakka til framhaldsins hjá sínu uppeldisfélagi. „Ég er virkilega ánægður með að fá að halda áfram í þessu verkefni hjá Fjölni. Það er draumur að fá að spila fyrir félagið mitt og taka þátt í að koma því aftur á þann stað sem það á heima,“ sagði Aron Breki.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.