Eftir tvö ár í Kórnum hefur vinstri hornamaðurinn, Tómas Sigurðarson ákveðið að framlengja veru sínu í Kópavoginum og hefur skrifað undir tveggja ára samning við HK og leikur með liðinu í Olís-deild karla áfram á næstu leiktíð. Þetta tilkynnti HK á samfélagsmiðlum sínum í morgun. ,,Það er mikið gleðiefni fyrir HK að Tómas hafi valið að halda áfram hjá félaginu og taka þátt í þeirri vegferð sem fram undan er. Við hlökkum til að sjá Tómas áfram í HK búningnum á komandi árum," segir í tilkynningunni frá HK. Tómas gekk í raðir HK frá Val fyrir tímabilið 2024/2025 eftir að hafa leikið með Val 2 í Grill66-deildinni. Tómas skoraði 25 mörk í 22 leikjum með HK í vetur en HK endaði í 8.sæti deildarinnar og tapaði gegn Íslandsmeisturunum í Val í 8-liða úrslitum 2-0.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.