Í úrslitaleik Evrópubikarsins þegar ungverska liðið Tatabánya og makedónska liðið GRK Ohrid mættust var alvarlegt atviki í miðjum leik þegar franska skyttan Baptiste Damatrin varð fyrir kynþáttafordómum úr stúkunni. Tatabánya heimsótti Ohrid í síðari leik úrslitaeinvígisins eftir að hafa tapað fyrri leiknum 29-28. Á meðan heimaliðið tryggði sér sigur í einvíginu beindist athyglin að atviki sem átti sér stað í síðari hálfleik. Damatrin, sem áður lék með HBC Nantes, sagði að atvikið hefði byrjað með móðgandi bendingum frá stuðningsmönnum Ohrid. „Fyrst var mér sýnd löngutöng. Ég hugsaði ekkert sérstaklega um það, því slíkt er því miður ekki óalgengt. Síðan fór sami maður að gefa frá sér apaöskur og benda á mig. Þá var mælirinn fullur“ sagði Damatrin. Samkvæmt Damatrin var ekki látið þar við sitja, heldur var einnig hrækt í átt að honum og liðsfélögum hans. „Flestir liðsfélagar mínir voru í áfalli og vissu ekki hvernig þeir áttu að bregðast við. Þetta var mjög furðuleg staða.“ Damatrin sagðist vera sérstaklega sár yfir atvikinu þar sem hann hefði leikið í mörgum löndum á ferlinum án þess að hafa áður orðið fyrir kynþáttafordómum. Hann gagnrýndi jafnframt viðbrögð eftirlitsmanns leiksins. „Hann vildi ekki heyra neitt um málið. Hann vildi þagga það niður og sagði mér bara að setjast niður, án þess að reyna að skilja hvað hefði gerst.“ Engar refsingar hafa enn verið tilkynntar vegna málsins. Damatrin telur þó að Tatabánya muni senda formlegt erindi til Evrópska handknattleikssambandsins, EHF, þar sem atvikið verður tilkynnt.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.