Silfurdrengur aðstoðar Hrannar í Mosfellsbænum
Sævar Jónasson

57 dögum eftir að Handkastið greindi frá því fyrst allra fjölmiðla að Stefán Árnason hafi verið sagt upp störfum sem þjálfari karlaliðs Aftureldingar virðist leitin af nýju þjálfarateymi liðsins loks hafa heppnast.

Samkvæmt heimildum Handkastsins verður nýtt þjálfarateymi Aftureldingar tilkynnt á næstunni en Hrannar Guðmundsson tekur við liðinu eftir að hafa stýrt karlaliði Stjörnunnar síðustu þrjú tímabil. Með honum verður Ingimundur Ingimundarson fyrrum landsliðsmaður og atvinnumaður.

Ingimundur vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og hefur undanfarin ár þjálfað yngri flokka hjá Val.

Afturelding endaði í 6.sæti Olís-deildarinnar undir stjórn Stefáns Árnasonar og tapaði í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins gegn Haukum í oddaleik.

Hrannar sem er uppalinn hjá Aftureldingu tekur nú við liðinu en samningur hans við Stjörnuna rann út í sumar. Honum var hinsvegar sagt upp störfum eftir deildarkeppnina í vor og stýrði Stjörnunni því ekki í umspilinu um laust sæti í Olís-deildinni eftir að Stjarnan endaði í 11.sæti deildarinnar.

Stjarnan vann ekki leik undir stjórn Hrannars í seinni umferðinni og tapaði öllum ellefu leikjum seinni umferðarinnar.

Tekur Hrannar við Aftureldingu?

Handkastið orðaði Hrannar sem þjálfara Aftureldingar um leið og Stefán Árnason var sagt upp störfum  en hann tengist vel mönnum innan stjórn handknattleiksdeildar Aftureldingar og þá á hann yngri bróðir í liðinu, Hauk Guðmundsson.

Hrannar hefur verið í þjálfarateymi íslenska karla landsliðsins síðustu tvö stórmót. Verður þetta annað aðalþjálfara starf hans sem karlalið en hann stýrði kvennaliði Stjörnunnar á sínum tíma.

Hákon Daði Styrmisson og Hans Jörgen Ólafsson hafa gengið í raðir Aftureldingar frá ÍBV og Stjörnunni og má gera ráð fyrir því að Afturelding mæti með öflugt lið til leiks á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top