Guðjón Valur Sigurðsson þjálfari Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni hefur verið valinn þjálfari ársins á tímabilinu. Frá þessu var greint á samfélagsmiðla síðu deildarinnar fyrr í dag. Er þetta í annað sinn á stuttum þjálfaraferli Guðjóns Vals sem hann er valinn þjálfari ársins í deildinni því hann var einnig kosinn þjálfari ársins tímabilið 2022/2023. Guðjón Valur er fjórði íslenski þjálfarinn til að hljóta þessa nafnbót því Alfreð Gíslason var valinn besti þjálfari deildarinnar tímabilið 2001/2002 sem þjálfari Magdeburg. Þá var Dagur Sigurðsson valinn besti þjálfari deildarinnar sem þjálfari Fuchse Berlín tímabilið 2010/2011 og Guðmundur Þórður Guðmundsson tímabilið 2013/2014 sem þjálfari Rhein Neckar Löwen. Ein umferð er eftir af þýsku úrvalsdeildinni en lokaumferðin fer fram á sunnudag þegar síðasta umferðin fer öll fram klukkan 13:00. Gummersbach er í 4.sæti deildarinnar en liðið tapaði gegn Þýskalandsmeisturunum í Magdeburg á dögunum í næst síðustu umferð deildarinnar. Eftir tapið gegn Magdeburg er ljóst að liðið endar í 4.sætinu á eftir Magdeburg, Fuchse Berlín og Flensburg. Um er að ræða besta árangur liðsins undir stjórn Guðjóns Vals sem tók við liðinu árið 2020 í næst efstu deild. Liðið fór upp í þýsku úrvalsdeildina á hans fyrsta tímabili og hefur leikið í bestu deild í heimi síðan þá.
Þjálfarar og stjórnendur í deildinni kjósa besta þjálfara deildarinnar og þar var Guðjón Valur Sigurðsson fyrrum landsliðsfyrirliði Íslands kosinn besti þjálfarinn eftir frábæran árangur hjá Gummersbach á tímabilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.