Það vakti athygli margra að Magnús Gunnar Karlsson einn af markvörðum bikarmeistara Hauka var hvergi sjáanlegur í leikmannahópi Hauka undir lok leiktímabilsins. Magnús Gunnar lék með Gróttu á láni frá Haukum á þar síðustu leiktíð og var síðan einn af tveimur markvörðum Hauka fyrir áramót ásamt áður en Grétar Ari Guðjónsson gekk í raðir Hauka eftir dvöl sína erlendis. Í kjölfarið urðu tækifæri Magnúsar enn minni en áður en fyrir áramót hafði Aron Rafn Eðvarðsson spilaði vel í marki Hauka og staðið í markinu meira og minna allan tímann. Magnús Gunnar staðfesti í samtali við Handkastið á dögunum að hann væri búinn að taka sér pásu frá handknattleiksiðkun. ,,Eins og staðan er núna þá er ég hættur, eða allavegana kominn í pásu í bili. Mér fannst þetta bara komið gott í bili. Ég er þar að auki að fara í nám næsta vetur samhliða vinnu og því hef ég ekki jafn mikinn tíma í þetta og áður," sagði Magnús Gunnar í samtali við Handkastið. Þessi tíðindi ýta enn meira undir það að Aron Rafn Eðvarðsson taki eitt ár í viðbót í það minnsta með Haukum og myndi þar markvarðarpar með Grétari Ara Guðjónssyni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.