Meistaratitilinn plástur á sárin eftir vonbrigðatímabil
Attila KISBENEDEK / AFP

Norska handknattleikskonan Henny Reistad viðurkennir að danski meistaratitillinn hafi verið afar mikilvægur fyrir Team Esbjerg eftir tímabil sem einkenndist að hluta af vonbrigðum.

Team Esbjerg tryggði sér danska meistaratitilinn á þriðjudagskvöld þegar liðið lagði Odense að velli í úrslitaeinvíginu. Fyrir Reistad var sigurinn þó ekki aðeins gleðiefni heldur einnig ákveðin léttir eftir að liðið náði ekki þeim markmiðum sem sett voru fyrir tímabilið.

Esbjerg mistókst að komast í úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu sem fram fer um helgina í Ungverjalandi og varð einnig af bikarmeistaratitlinum. Því skipti danski meistaratitillinn miklu fyrir liðið.

„Þetta er eins konar plástur á sárin. Við hefðum aldrei getað fyrirgefið okkur sjálfum ef við hefðum ekki unnið danska meistaratitilinn eftir svona tímabil,“ sagði Reistad í viðtali við DR Sporten eftir leikinn.

Odense veitti Esbjerg harða keppni í úrslitarimmunni, en Esbjerg sýndi enn á ný styrk sinn þegar mest á reyndi og tryggði sér eftirsóttan meistaratitil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top